Bókhalds- & Uppgjörs- þjónusta fyrir þig. arrow-left

Við færum bókhald fyrir fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.

Skil á VSK skýrslum veita aukin þægindi og yfirsýn

Við sjáum um virðisaukaskattsuppgjör fyrir viðskiptavini okkar.

* Ef ekki er greitt á gjalddaga skal aðili sæta álagi til viðbótar því gjaldi sem honum ber að standa skil á. Álag er 1% fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga (upplýsingar af vef rsk)

KÆRUR VIÐ SVÖRUM

Við kærum úrskurði/álagningu skattstjóra ef tilefni er til þess. Jafnframt svörum við öllum fyrirspurnum skattstjóra fyrir viðskiptavini okkar.

STOFNUN FÉLAGA

Við sjáum um stofnun félaga þ.e.a.s. alla skjalagerð varðandi stofnun á ehf., hf., slf. Jafnfamt tökum við að okkur ýmsa aðra skjalagerð/samninga s.s. að útbúa skuldabréf, gerð leigusamninga,kaupsamninga annarra eigna en fasteigna, ráðningasamninga og gerð ýmissa annarra viðskiptabréfa..

REKSTRARRÁÐGJÖF

Við sjáum um alla almenna ráðgjöf fyrir fyrirtæki vegna rekstrar og bókhalds. Jafnfamt sjáum við um að leysa úr hvers kyns fjárhagsvandamálum hjá einskaklingum sem eru mjög skuldum vafnir. Við kryfjum fjármál þín til mergjar og setjum upp greiðsluáætlun fyrir þig svo þú komist út úr skuldunum. Jafnfamt reynum við að semja við lánadrottna um lækkun á skuld og/eða niðurfellingu vaxta.

FJÁRHAGSAÐSTOÐ

Við getum séð um alla almenna ráðgjöf fyrir fyrirtæki vegna rekstrar og bókhalds sé óskað eftir því. Jafnfamt sjáum við um að leysa úr hvers kyns fjárhagsvandamálum hjá einskaklingum sem eru mjög skuldum vafnir. Við kryfjum fjármál þín til mergjar og setjum upp greiðsluáætlun fyrir þig svo þú komist út úr skuldunum. Jafnfamt reynum við að semja við lánadrottna um lækkun á skuld og eða niðurfellingu vaxta.

ÖNNUR RÁÐGJÖF

ÖNNUR RÁÐGJÖF

Þú getur fengið tilboð

frá okkur án nokkurra skuldbindinga.

Hringdu í síma: 571 6388